
Staður: Hjá Kvan í kjallara safnaðarheimilis Kópavogskirkju
Tími: Þriðjudgur, 24. apríl kl. 12: – 13:00.
Um námskeiðið
Liðsheild er einn mikilvægasti þáttur fyrirtækja til að ná árangri. Góð liðheild getur ráðið úrslitum um árangur fyrirtækja og hvort þau ná að vaxa og dafna. Á þessum fyrirlestri mun Jón fjalla um hvernig við sköpum sterka liðsheild og fáum alla til að stefna að sama marki. Skemmtilegur fyrirlestur þar sem að við skoðum hvernig hægt er að byggja upp skemmtilega fyrirtækjamenningu – sem styður við markmið fyrirtækja.
Jón Halldórsson er menntaður íþróttakennari, lögreglumaður og er vottaður ACC markþjálfi. Hann starfar sem framkvæmdarstjóri KVAN, þjálfari á námskeiðum, stjórnendamarkþjálfi ásamt því að halda fyrirlestra. Jón hefur í fjölda ára starfað við að þjálfa einstaklinga, stjórnendur og starfsmenn fyrirtækja, einnig hefur hann haldið hundruði fyrirlestra með mismunandi efnistökum. Jón hefur unnið mikið með afreksíþróttafólki og aðstoðað það við að setja sér skýr markmið og með aðferðarfræði markþjálfunar skoðað hvaða þætttir eru líklegastir til að hjálpa viðkomandi einstakling að ná settu marki.
Í boði verður léttur hádegismatur.
Viðburðurinn er í boði fyrir fyrirtæki í Kópavogi.
Skráðu fyrirtæki þitt sem aðila að Markaðsstofu Kópavos það kostar aðeins 12 þúsund krónur á ári. Sjá nánar hér.