
Næstu viðburðir
Samstarfsaðilar
Við gerum Kópavog betri með eftirtöldum fyrirtækjum : Stilling hf Valka ehf. Vatnsborun ehf Hegas ehf. Lind fasteignasala ehf. Litalausnir málningarþjónusta ehf Ljósvakinn ehf Arion banki Nordic Holding ehf. Svansprent ehf Kruðerí ehf. Straumver ehf PK Byggingar ehf. Tengi ehf. Ísbúð Vesturbæjar ehf. Sólbaðsstofan Sælan ehf. 18 Rauðar Rósir ehf Flotgólf ehf. Sérverk ehf. Nýja kökuhúsið ehf Stjörnublikk ehf Tokyo veitingar ehf. ALARK arkitektar ehf ÁF-Hús ehf Herramenn ehf Stálgæði ehf Hreint ehf. Íslyft ehf. Vinnuföt, heildverslun ehf Smáralind ehf. Reginn hf. BB44 Gisting ehf Teitur Jónasson ehf Allt í köku ehf. Fasteignasalinn slf. Dekkverk Dressmann á Íslandi ehf. Hár ný
Árangur
Árangur næst með samstarfi. Stundum hreppir einn sviðsljósið þótt yfirleitt hafi fleiri en einn og fleiri en tveir komið að verkefninu. Steve Jobs vann með Steve Wosniak, Bill Gates með Paul Allen, Gunnar þurfti Gylfa, Tom þurfti Jerry og Simmi þurfti Jóa. Einstaklingurinn getur verið sterkur en samvinna og samstarf skapar samræðu sem skilar sér í betri árangri. Saman erum við sterkari. Því hvetjum við fyrirtæki í Kópavogi til samstarfs og fyrsta skrefið er að gerast aðilar að Markaðsstofunni og þannig vildarvinir hennar.
Ávinningur
Með þátttöku og samstarfi eflist samfélagið og fyrirtækjaumhverfið. Við sköpum aukin verðmæti fyrir fyrirtækið þitt um leið og Markaðsstofan eflist í starfi sínu. Þannig sjáum við fleiri tækifæri en ella og náum betri árangri. Fyrirtækið þitt hefur með þátttöku í Markaðsstofunni atkvæðisrétt á aðalfundi og fulltrúi þess getur boðið sig fram til stjórnarsetu. Þannig hefur þú áhrif á starfsemi Markaðsstofunnar. Markaðsstofa Kópavogs er í góðu sambandi við stjórnsýslu bæjarins og á Markaðsstofunni er dýrmæt reynsla þegar kemur að markaðsstarfi, stefnumótun, fjölmiðlun, nýsköpun, þjónustu og almannatengslum. Náin samvinna opnar augun fyrir nýjum tækifærum og tengingum.
Hvert er hlutverk Markaðsstofu Kópavogs?
Markaðsstofan er brú á milli atvinnulífs og stjórnsýslu bæjarins jafnt sem tenging á milli mismunandi hagsmunahópa í bænum. Markaðsstofan vinnur að því að laða jafnt atvinnustarfsemi og íbúa til bæjarins og styrkja þar með samfélagið í Kópavogi. Það gerir hún með öflugu markaðsstarfi og kynningu á kostum Kópavogs og tækifærum sem þar er að finna. Framkvæmdastjóri Markaðsstofu Kópavogs er Heimir Jónasson. Sjá nánar hér.